Kaldbakshorn

Kaldbaksvíkurhorn


sorcery/magic/witchcraft ancient heroes (fornmenn) fiskimið boundary marker (landamerki) fish
Örnefnaskrá

Í Landamerkjabók fyrir Strandasýslu segir svo um landamerki Kleifa árið 1890: Milli Kaldbaks: frá Kaldbaksárósi, eins og áin ræður til fjalls nema einn hólmi, sem er Kleifa megin við ána, og svo ofan fjalls eins og vötn ráða á Kaldbakshorn og þaðan í Kaldbaksófæru […] Svansgjá (59) er upp af Urðinni upp í brún á Kaldbakshorni (60), sem er hátt fjall. […] Fjallið heitir Kaldbakshorn fram að Lækjargjá (61). Úr henni kemur Hrafnshamarslækur. (Guðrún S. Magnúsdóttir, Kleifar í Kaldbaksvík (Strandasýsla, Kaldrananeshreppur), bls. 4, bls. 5)

 

Fjallið: […] 44 Hallsgjá 45 Kaldbakshorn 46 Svansgjá (Símon Jóh. Ágústsson, Kleifar í Kaldbaksvík (Strandasýsla, Kaldrananeshreppur), bls. 2)

 

Í Landamerkjabók fyrir Strandasýslu frá 1890 segir svo um landamerki Eyja: „Milli Eyja og Kleifa úr Slitrunefi í Kaldbakshorn, þaðan fram brúnina eins og vötnum hallar. […]“ […] Landamerki milli Kleifa og Eyja eru úr Slitranefi (22) [neðanmálsgrein: 1) Í Landamerkjabók Slitrunef (22a).] beint í Kaldbakshorn (23). Slitranef er mjótt en hátt nef, sem nær fram í sjó í norðaustur. Fjallið ofan við nefnist Kaldbakshorn. (Guðrún S. Magnúsdóttir, Eyjar (Strandasýsla, Kaldrananeshreppur), bls. 1, bls. 3)

Sögur

Þau tíðendi spurðusk ór Bjarnarfirði norðan, at Svanr hafði róit at veiðiskap um várit, ok kom at þeim austanveðr mikit, ok rak þá upp at Veiðilausu ok týndusk þar. En fiskimenn þeir, er váru at Kaldbak, þóttusk sjá Svan ganga inn í fjallit Kaldbakshorn, ok var honum þar vel fagnat; en sumir mæltu því í móti ok kváðu engu gegna, en þat vissu allir, at hann fannsk hvárki lífs né dauðr. (Einar Ól. Sveinsson (editor), Brennu-Njáls saga, bls. 46)

Fiskimið

Matarfellsbrún er kallað þegar Matarfellið liggur við Kjörvogsmúla og Eyjahyrna kemur fram undan Kaldbakshorni. […] Þar er bezta fiskislóðin þegar Speninn í Kolbeinsvík er genginn fram í Svansgjá í Kaldbakshorni, eða jafnvel upp á Hornið í kverk. Það er þegar Kaldbakshorn ber yfir lægðina fyrir ofan Kolbeinsvíkurspenann. […] Drangaskörð heitir miðið, þegar drangarnir bera saman og skörðin lokast og á stykkjuðu Kaldbakshorni. […] Fossar eru þegar Dalholtsfoss og Selbreiðafoss bera saman og Kolbeinsvíkurspeni kemur fram undan Kaldbakshorns-skriðum […] Spena-áll er þegar Kolbeinsvíkurspeni kemur fram undan Kaldbakshornsskriðum og innri fjárhúsendinn í Asparvík ber í ytri Klifsendann í Asparvík. (Jóhannes Jónsson, „Nokkur fiskimið á vestanverðum Húnaflóa“, bls. 94–95, bls. 98–99)

 

2. Spenadjúp er sagt vera hákarlamið undan Ingólfsfirði […]. Djúpmiðið í það er líklega Speninn við Kaldbakshornið (Speninn samjaðra) en ekki er vitað um þvermiðið. […] 12. Horn er einnig sagt vera út af Trékyllisvík og er næsta víst að það er sama mið og nú nefnist svo en þá er Kaldbakshorn að koma undan Byrgisvíkurfjallinu. Þetta er eitt af höfuðdjúpmiðunum í Árneshreppi og eru mörg þvermið á það. (Haukur Jóhannesson, „Forn fiskimið fyrir Árneshreppi“, bls. 39, bls. 40)

 

Næsta mið var Drangaskörð (2), þ.e. þvermiðið þegar þau bar saman, svo að sýndist ein egg, innmiðið Kaldbakshorn. […] Byrgisvíkurmið (11). […] Stundum var innmiðið Kaldbakshorn (Guðrún S. Magnúsdóttir, Mið frá Gjögri (Strandasýsla, Árnes- og Kaldrananeshreppur), bls. 1, bls. 2)

 

Djúpmið […] 2. Blint hornið. Kaldbakshornið rétt ókomið undan Byrgisvíkurfjallinu. 3. Hornið eða Hornið samjaðra. Hornið jaðrar við Byrgisvíkurfjall. 4. Biti af Horninu. Allra fremsti hluti Hornsins kominn fram undan Birgisvíkurfjallinu. 5. Stykki af Horninu. Stykki af Horninu komið fram undan Byrgisvíkurfjalli. 6. Ljóst Hornið. Hornið nær allt komið fram undan Byrgisvíkurfjalli. 7. Langljóst Hornið. Allt Hornið komið fram undan Birgisvíkurfjallinu 8. Hornið í Kverk. Þá er Hornið yfir kverkinni bak við Spenann. (Haukur Jóhannesson, „Fiskimið undan Reykjanesi og Reykjarfirði í Árneshreppi“, bls. 1–2)

 

Mið út af Trékyllisvík, djúpmið. […] Horn (7), þá kemur Kaldbaksvíkurhornið fram undan Byrgisvíkurfjallinu. Speninn samjaðra (8), þá er Speninn samjaðra Horninu. Eyjahyrna (9), þá kemur Eyjahyrna fram undan Horninu […] Norðurmið. […] Horn í kverk (13), þegar Kaldbaksvíkurhorn ber yfir kverkina bak við Spenann í Byrgisvíkurfjalli. (Haukur Jóhannesson, Fiskimið út af Árneshreppi, bls. 1–2)

 

Djúpmið, þegar farið er beint úr frá Trékyllisvík. […] Horn (12), þegar Kaldbaksvíkurhorn kemur fram undan Byrgisvíkurfjalli. Horn í kverk (13), Hornið ber í kverkina bak við Spenann. Speninn samjaðra (14), þegar Speninn var samjaðra Kaldbaksvíkurhorni. […] Eyjahyrna (17), þegar Eyjahyrna kom undan Kaldbaksvíkurhorni. (Haukur Jóhannesson, Fiskimið (Strandasýsla, Árneshreppur), bls. 1–2)

 

veiðisaga (fiskimið „upp á Kaldbakshornið“): síld og spraka (sbr. Vilmundur Hansen, „Axel á Gjögri ja hann tekur sko hraustlega í nefið“, bls. 109–110)

Skildu eftir athugasemd