Svansgjá

Svansgjá í Kaldbakshorni, gjá í Kaldbaksvíkurhorni


sorcery/magic/witchcraft ancient heroes (fornmenn) fiskimið
Örnefnaskrá

Svansgjá (59) er upp af Urðinni upp í brún á Kaldbakshorni (60), sem er hátt fjall. Sagan segir, að Svanur á Svanshóli í Bjarnarfirði hafi farið milli hennar og Svansgjár í fjallinu upp af bæ hans. Hún er öll í Kleifalandi. (Guðrún S. Magnúsdóttir, Kleifar í Kaldbaksvík (Strandasýsla, Kaldrananeshreppur), bls. 4)

 

Slitranef (47), þar upp af Svansgjá (48). Þar kom Svanur gamli á Svanshóli út úr fjallinu, þegar hann stytti sér leið með því að stinga sér inn í fjallið upp af bænum á Svanshóli. Þá stundaði hann fiskiróðra í Kaldbaksvík. Eru þarna landamerki milli Kleifa og Eyja. (Matthías Helgason, Kleifar í Kaldbaksvík (Strandasýsla, Kaldrananeshreppur), bls. 1)

 

Fjallið: […] 45 Kaldbakshorn 46 Svansgjá 47 Stekkjargil (Símon Jóh. Ágústsson, Kleifar í Kaldbaksvík (Strandasýsla, Kaldrananeshreppur), bls. 2)

Sögur

Kaldbakshorn er þverhnýpt og mjög hrikalegt, og fyrir neðan liggur vegurinn yfir urð af eintómum stórbjörgum; að norðanverðu gengur hrikaleg gjá upp í gegnum fjallið; hún heitir Svansgjá; þar er sagt, að Svanur gamli hafi gengið í gegnum fjallið. (Þorvaldur Thoroddsen, „Ferðasaga frá Vestfjörðum“, bls. 155)

 

Svansgjá, sbr. Helga Bjarnadóttir, 23. maí 1972, Ísmús: SÁM 91/2477 EF

Fiskimið

Það þykir til dæmis ágætt að leggja línu upp á grunnið þar til Kolbeinsvíkurspeni er genginn fram í skriður fram yfir Svansgjá í Kaldbakshorni. […] Þar er bezta fiskislóðin þegar Speninn í Kolbeinsvík er genginn fram í Svansgjá í Kaldbakshorni (Jóhannes Jónsson, „Nokkur fiskimið á vestanverðum Húnaflóa“, bls. 94)

 

Næsta mið var Speninn í Gjána (Svansgjá í Kaldbakshorni) (Guðrún S. Magnúsdóttir, Mið frá Gjögri (Strandasýsla, Árnes- og Kaldrananeshreppur), bls. 2)

 

12. Speninn í Gjá. Spenann ber í Svansgjá í Horninu. (Haukur Jóhannesson, „Fiskimið undan Reykjanesi og Reykjarfirði í Árneshreppi“, bls. 2)

 

Djúpmið, þegar farið er beint úr frá Trékyllisvík. […] Speninn í gjá (15), þegar Spenann bar í gjána í Kaldbaksvíkurhorni. Speninn í klett (16), þegar Spenann bar í klettana innan við gjána í Kaldbaksvíkurhorni. (Haukur Jóhannesson, Fiskimið (Strandasýsla, Árneshreppur), bls. 1–2)

Skildu eftir athugasemd