Búrfell

Matarfell


other death tales fiskimið roadside place whale
Örnefnaskrá

Búrfell (154) er hátt fjall fyrir miðjum botni Reykjarfjarðar, nokkuð langt með lægð í miðju. Efst á því er varða, sem sagt er, að Björn Gunnlaugsson hafi hlaðið. Af sjó úr Húnaflóa er fjallið ávallt nefnt Matarfell (155). Eru nokkur mið kennd við það, t.d. kallað „að róa fram á Matarfellsbrún (156)“. (Guðrún S. Magnúsdóttir, Kjós (Strandasýsla, Árneshreppur), bls. 11)

 

130 Búrfell (Af sjó: Matarfell sbr róa fram á Matarfellsbrún) (Símon Jóh. Ágústsson, Kjós (Strandasýsla, Árneshreppur), bls. 3)

 

Búrfellsvatn […] er sunnan eða suðaustanvert við Búrfell (28), langt burstmyndað fell með nokkurri lægð í miðju. Af sjó var það alltaf nefnt Matarfell (29). (Guðrún S. Magnúsdóttir, Reykjarfjörður (Strandasýsla, Árneshreppur), bls. 3)

 

Suður úr Breiðadal eru Stórholt (47) og Búrfellsholt (48) í vesturátt og fell hátt nefnt Búrfell (49) norðvestur á Trékyllisheiði (50) (Jóhann Hjaltason, Reykjarfjörður. Örnefni og sagnir (Strandasýsla, Árneshreppur), bls. 4)

 

Stundum kom fyrir þegar fara þurfti Trékyllisheiði [frá Ófeigsfirði] að ekki var farið ofan í Reykjarfjörð heldur farin fjallasýn bak við Búrfell og þaðan á heiðarveginn. (Haukur Jóhannesson, Örnefnalýsing Ófeigsfjarðar (Strandasýsla, Árneshreppur), bls. 25)

 

Matarfell er sama fjall og Búrfell. Það var gömul trú að ekki mætti nefna Búr á sjó, því þá kæmi Búrhveli og grönduðu bátnum, þess vegna er það aldagömul hefð, að kalla þetta fell, sem er upp úr Reykjarfirði, Matarfell er verið er á sjó, en Búrfell þegar verið er í landi. (Jóhannes Jónsson, „Nokkur fiskimið á vestanverðum Húnaflóa“, bls. 94)

 

Búrfell (697m) er hæsta fellið fyrir botni Reykjarfjarðar. […] Af sjó nefndist Búrfell aldrei annað en Matarfell. (Haukur Jóhannesson, Stundir á Ströndum. Frá Kolbeinsvík norður á Geirhólm, bls. 22)

Fiskimið

Matarfellsbrún er kallað þegar Matarfellið liggur við Kjörvogsmúla og Eyjahyrna kemur fram undan Kaldbakshorni. […] Urriðaborg kallast fiskimiðið, þegar Urriðaborg á Bjarnarfjarðarhálsi kemur fram undan Eyjafjalli og Matarfellið kemur undan Kambinum að norðan. (Jóhannes Jónsson, „Nokkur fiskimið á vestanverðum Húnaflóa“, bls. 94, bls. 95)

 

Þvermið […] 3. Matarfell. Búrfell jaðrar við Kambinn að sunnan. 4. Matarfell. Búrfell jaðrar við Kambinn að norðan. […] 21. Matarfell eða Matarfellsbrún. Búrfell við Kjörvogs-múlann. (Haukur Jóhannesson, „Fiskimið undan Reykjanesi og Reykjarfirði í Árneshreppi“, bls. 2, bls. 3)

 

Norðurmið. […] Matarfellsbrún (22), þegar Búrfell er við Kambinn. (Haukur Jóhannesson, Fiskimið (Strandasýsla, Árneshreppur), bls. 2)

Skildu eftir athugasemd