Búrfellsvatn


widow curses a place after the death of her children other death tales lake roadside place fish

Foldir (147) nefnast einu nafni hálendið frá Kjósará að Búrfellsvatni (148) […] Búrfellsvatn er allstórt aflangt vatn suðaustan undir Búrfelli. Engin veiði er í vatninu. Á rennur úr því niður í Reykjarfjörð, kölluð Óveiðisá (Guðrún S. Magnúsdóttir, Kjós (Strandasýsla, Árneshreppur), bls. 10, bls. 11)

 

131 Búrfellsvatn (Símon Jóh. Ágústsson, Kjós (Strandasýsla, Árneshreppur), bls. 3)

 

Nokkru fyrir framan túnið rennur Óveiðisá. Hún kemur úr Búrfellsvatni (27), sem er sunnan eða suðaustanvert við Búrfell (28), langt burstmyndað fell með nokkurri lægð í miðju. […] Engin veiði er í Óveiðisá né Búrfellsvatni. Samkvæmt frásögn dr. Símonar Jóh. Ágústssonar var sú sögn um veiðileysi í Óveiðisá, að tveir ungir synir ekkju í Reykjarfirði hafi verið við silungsveiðar í Búrfellsvatni en drukknað þar. Lét hún svo um mælt, að hvorki skyldi veiðast í vatninu né ánni eftir það. (Guðrún S. Magnúsdóttir, Reykjarfjörður (Strandasýsla, Árneshreppur), bls. 3)

 

Austan undir Búrfelli en ofan við Búrfellshæðirnar er allstórt vatn, Búrfellsvatn. […] Tveir ungir synir ekkju sem bjó fyrrum í Reykjarfirði voru við silungsveiðar í Búrfellsvatni og drukknuðu þar. Ekkjan brást illa við og lagði það á að hvorki skyldi veiðast silungur í vatninu né í ánni sem úr því rennur. Það hefur gengið eftir enda eru engir hyljir í ánni og veiðiskilyrði bágborin. Munnmæli: ýmsir heimildarmenn (Haukur Jóhannesson, Stundir á Ströndum. Frá Kolbeinsvík norður á Geirhólm, bls. 22)

 

vatnaálög: kerling lagði veiðiálög á Búrfellsvatn, sbr. Dagrún Ósk Jónsdóttir & Jón Jónsson, Álagablettir á Ströndum, bls. 83, bls. 145

Skildu eftir athugasemd