Óveiðisá


widow curses a place after the death of her children other death tales river/watercourse

Nokkuð sunnarlega í túninu rennur [Myllu]lækur úr Óveiðisá (25), sem síðar verður sagt frá. […] Nokkru fyrir framan túnið rennur Óveiðisá. Hún kemur úr Búrfellsvatni (27) […] Engin veiði er í Óveiðisá né Búrfellsvatni. Samkvæmt frásögn dr. Símonar Jóh. Ágústssonar var sú sögn um veiðileysi í Óveiðisá, að tveir ungir synir ekkju í Reykjarfirði hafi verið við silungsveiðar í Búrfellsvatni en drukknað þar. Lét hún svo um mælt, að hvorki skyldi veiðast í vatninu né ánni eftir það. Áinn er grunn, svo að ekki er sennilegt, að neinn drukknaði þar, sbr. frásögn Jóhanns Hjaltasonar. Í henni eru engir hyljir né önnur góð skilyrði, til þess að hún sé veiðiá. Óveiðisá rennur í Reykjarfjarðará nokkru fyrir framan túnið. Trúlega hefur hún eitt sinn runnið sunnan við það, því að þar er talsverður farvegur. Á korti herforingjaráðs er sýnt, að hún renni þar. (Guðrún S. Magnúsdóttir, Reykjarfjörður (Strandasýsla, Árneshreppur), bls. 3)

 

Sunnan við Breiðadal er Óveiðisá (51), þar veiðist aldrei nokkur branda af silungi eða þ. h. sem ella er nokkur í Reykjarfjarðá og er mælt að því valdi álög, sem fyrir það eru til orðin, að eitt sinn fórust í ánni strákar tveir synir ekkju er bjó í Reykjarfirði, sem voru að silungsveiðum í ánni, og lagði móðir þeirra þá þetta á og mælti svo um, að þar skyldi eigi framar silungur sjást. (Jóhann Hjaltason, Reykjarfjörður. Örnefni og sagnir (Strandasýsla, Árneshreppur), bls. 5)

 

25 Óveiðisá (Símon Jóh. Ágústsson, Reykjarfjörður (Strandasýsla, Árneshreppur), bls. 1)

 

Úr [Búrfells]vatninu fellur lítil á, Óveiðisá, niður í átt að Reykjarfjarðarbænum. Þar sem hún fellur fram af Búrfellshæðum er einstaklega fagur foss, Óveiðisárfoss, og líkist hann í sumu Dynjanda við Arnarfjörð. […] Óveiðisá. Tveir ungir synir ekkju sem bjó fyrrum í Reykjarfirði voru við silungsveiðar í Búrfellsvatni og drukknuðu þar. Ekkjan brást illa við og lagði það á að hvorki skyldi veiðast silungur í vatninu né í ánni sem úr því rennur. Það hefur gengið eftir enda eru engir hyljir í ánni og veiðiskilyrði bágborin. Munnmæli: ýmsir heimildarmenn (Haukur Jóhannesson, Stundir á Ströndum. Frá Kolbeinsvík norður á Geirhólm, bls. 22)

 

vatnaálög: kerling lagði veiðiálög á Óveiðisá, sbr. Dagrún Ósk Jónsdóttir & Jón Jónsson, Álagablettir á Ströndum, bls. 83, bls. 145

Skildu eftir athugasemd