Lambhús


elves other elf encounters other sheep place sheep (general)
Örnefnaskrá

Við Kinnina eru Gömlu-húsin (85) og við þau er elsta hlaðan hér á bæ, Lambhúshlaðan (86). Hún var byggð 1921 og nokkuð framlengt síðar. Sumsstaðar eru viðir í hlöðunni skeyttir saman af miklum hagleik með trélásum og stafir tappaðir upp í syllu og niður í fótstykki. Áður var austan hlöðunnar Lambhús (87) en við hinn endann var Hrútakofi (88), hvort tveggja undir torfþaki. Nú eru sunnan hlöðunnar tveggja risa fjárhús. (Ingimundur Ingimundarson, Svanshóll (Strandasýsla, Kaldrananeshreppur), bls. 26)

Sögur

Undra ljósið. […] Þegar svo pabbi er kominn þvínær að ljúsunum kemur hitt út úr þeim [húsum] og falla ljósglamparnir saman örlitla stund, en aðkomuljósið heldur bak við Miðhúsin og Lambhúsið, og hverfur við Kvíjaklettana. (Ingimundur Ingimundarson, Svanshóll. Álagablettir og huldufólkstrú (Strandasýsla, Kaldrananeshreppur), bls. 2)

Skildu eftir athugasemd