Kvíjaklettabrekka


álagablettur álagablettur on land death of livestock tún (home field) kví cattle horses other wild plants
Örnefnaskrá

Gamli hreppavegurinn var inn í túnið utan við Kvíjakletta, meðfram Kvíjaklettabrekku (81) og þaðan fram í Læki, neðan við Kvíjabrekku (82). Kvíjaklettabrekka er álagablettur sem ég get um síðar. […] Þá er rétt að drepa aðeins á Kvíjaklettana og bannhelgina í brekkunni undir þeim. (Ingimundur Ingimundarson, Svanshóll (Strandasýsla, Kaldrananeshreppur), bls. 26, bls. 28)

Sögur

Ekki er vitað um aðra álagabletti í Svanshólslandi en Kvíjaklettabrekku, og raunar klettana líka. Reyrilmur er úr brekkunni og hún liggur ávalt í leg, en er all grýtt. Bannhelgin nær bara niður að gamla hreppaveginum, sem ennþá sézt sumsstaðar fyrir. Frá því ég man til, var tvisvar slegið örlítið upp í brekkuna. Í fyrra skiptið var það sumarið 1925, að slegið var þar af vangá. Þá um haustið, eða í áhlaupsbyl 28 nóv. fórst aðal dráttarhesturinn í Bjarnarfjarðará, og er það eini hesturinn sem ég veit til að hafi farist hér í hættur. Nokkrum árum síðar kom svipuð óvarkárni fyrir við sláttinn, án þess að það væri ásetningur. Þegar svo heyið var gefið um veturinn, snögg drapst ágæt mjólkurkýr. Hvorttveggja var sett í sambandi við bannhelgina. (Ingimundur Ingimundarson, Svanshóll. Álagablettir og huldufólkstrú (Strandasýsla, Kaldrananeshreppur), bls. 1)

 

(álagablettur:) á Svanshóli sést ljós í klettum eða undir klettum þar sem að voru fjárhús en enginn maður var, bara fyrir ofan bæinn þar í túninu, sbr. Pálmi Sigurðarson

 

álagablettur, sbr. Arngrímur Ingimundarson, 15. september 1970, Ísmús: SÁM 85/590 EF

Leave a Reply