Sjónarhóll

Tjaldhóll


hill (hóll) boundary marker (landamerki) birds (others)

Goðdalsárbakkar (93) eru frá ásnum að Sjónarhól (94) þar sem landamerki Svanshóls og Goðdals eru, en þetta er melhóll með örlítilli tjörn, Smalatjörn […] Þar um liggja landamerki Svanshóls og Goðdals, eða frá Sjónarhól við Goðdalsá og á ská fram og upp á Landamerkjasvaða (232) […] Talsvert var um andavarp með fram Goðdalsá, inni í runnum. Venjulega voru þau látin afskiptalaus. Einu sinni var stokkandarhreiður í runna við Sjónarhól þar sem malarsteinn á stærð við eggin var í því miðju og þegar öndin fór af var hann glóðvolgur og hefur örugglega haldið varma að eggjunum lengur en ella hefði orðið. (Ingimundur Ingimundarson, Svanshóll (Strandasýsla, Kaldrananeshreppur), bls. 6, bls. 13)

Sjónarhóll (178) við [Smala]tjörnina, en skiptast lönd Svanshóls og Goðdals. Þar var áður smalakofi, sem nú er löngu fallinn í rúst, enda fráfærur löngu niður lagður. (Matthías Helgason, Svanshóll (Strandasýsla, Kaldrananeshreppur), bls. 5)

En þegar ég var í Goðdal var hóllinn á landamerkjum Svanshóls og Goðdals, ýmist nefndur Sjónarhóll eða Tjaldhóll. Þegar ég skrifaði örnefnin, komst ég þar í dálítinn vanda. Eftir dálitla íhugun setti ég Tjaldhólsnafnið á hann. Þegar athugað er umhverfið finnst mér, að hóllinn geti tæplega borið nafnið Sjónarhóll, en hafi hann borið Sjónarhólsnafnið frá fyrri tímum, er auðvitað rétt að hann haldi því framvegis. […] Nú skulum við lesari góður labba út dalinn austan verðan og út að landamerkjum Goðdals og Svanshóls, við fylgjum Goðdalsá þar til við komum að litlum melhól, alveg á bakkanum niður af hólnum eru klettar í ánni er ná spottkorn upp fyrir hólinn. Þessi hóll heitir Tjaldhóll (16). Man ég eftir að í brekkunni út af hólnum var engjafólk frá Svanshóli vant að hafa tjaldstað sinn. Úr Tjaldhól, bein sjónhending upp á brúnina þar upp af sem heitir Goðdalshyrna (17), eru landamerki milli Goðdals og Svanshóls. […] Tjaldhóll er einnig kallaður Sjónarhóll (114) og það er algengara nafn nú orðið. Landamerkin eru bein sjónarhending þaðan á hábrúnina upp og út af Háahjalli. (Rósmundur Jóhannsson & Ingimundur Ingimundarsson, Goðdalur í Bjarnarfirði. Örnefni og sagnir (Strandasýsla, Kaldrananeshreppur), bréf, bls. 1–2, bls. 8)

Tjáldhóll (16) hefur nokkru eftir siðustu aldamót eingöngu gengið undir heitinu Sjónarhóll (114). (Ingimundur Ingimundarson, Örnefnaskráning Goðdals. Skýringar og viðbót við skráningu Rósmundar á Gilsstöðum (Strandasýsla, Kaldrananeshreppur), bls. 1)

Sjónarhóll (90) við ána niðri af Goðdalshyrnu. Er þá komið að landamerkjum Goðdals og Svanshóls. (Matthías Helgason, Goðdalur (Strandasýsla, Kaldrananeshreppur), bls. 2)

Skildu eftir athugasemd