Önundarhaugar

Tréfótshaugar, Tréfótshaugur, Haugar, haugur Önundar tréfótar, haugur Önundar tréfóts


haunting (reimleiki) visions and the second sight ancient heroes (fornmenn) founder’s burial mound buried/hidden treasure
Örnefnaskrá

Fremst í dalnum við [Kaldbaks]ána eru Önundarhaugar (8) eða Haugar (9), tveir. Páll kannast ekki við nafnið Tréfótshaugar (10), sem Símon Jóh. Ágústsson skráði eftir Guðjóni, bróður Páls. Sagt er, að Önundur tréfótur, landnámsmaður, sé grafinn í fremri haugnum, en skip hans í hinum. Hvergi er betri útsýni yfir dalinn en frá þessum stað. Sú sögn var, að ekki mætti grafa í haugana, en Gísli ríki á Bæ á Selströnd (f. 1783, d. 1862, Strandamenn, bls. 386), sem átti Kleifar, hefði átt að láta gera það. Þá átti þeim, sem grófu, að sýnast Kleifabær loga, svo að þeir hættu. Á neðri haugnum sést rask. […] Haugafljót (92) er smáhylur neðanvert við Önundarhauga, neðan við neðsta fossinn. (Guðrún S. Magnúsdóttir, Kleifar í Kaldbaksvík (Strandasýsla, Kaldrananeshreppur), bls. 2, bls. 6)

 

Fremst eru Þröskuldar (2), þá Haugar (3). Þar, er sagt, að Önundur tréfótur sé heygður. (Matthías Helgason, Kleifar í Kaldbaksvík (Strandasýsla, Kaldrananeshreppur), bls. 1)

 

13 Tréfótshaugar (í dagl. tali Haugar (13a), þar á Ønundur tréfótur að vera grafinn) (Símon Jóh. Ágústsson, Kleifar í Kaldbaksvík (Strandasýsla, Kaldrananeshreppur), bls. 1)

 

Hólmar og Tvíhlíðar ná fram að Haugagili (108). Haugamýri (109) er framan við það, liggur niður að á. Kleifamegin við ána eru tveir haugar. Í þeim fremri á Önundur tréfótur að vera grafinn, en í hinum skip hans. Ofan við Haugamýri er Haugahlíð (110). […] Haugafljót (138) er smáhylur neðanvert við haugana í Kleifalandi, neðan við neðsta fossinn í ánni. (Guðrún S. Magnúsdóttir, Kaldbakur (Strandasýsla, Kaldrananeshreppur), bls. 6, bls. 8)

 

Hólmur (73), Haugsmýri (74), Haugagil (75), Haugshlíðarflatir (76), Haugshlíðarhögg (77) (Matthías Helgason, Kaldbakur (Strandasýsla, Kaldrananeshreppur), bls. 2)

 

100 Haugamýri 101 Haugahlíð 102 Haugagil […] 127 Haugsfljót (Símon Jóh. Ágústsson, Kaldbakur (Strandasýsla, Kaldrananeshreppur), bls. 3)

 

Í Kaldbaksá er og foss fremst í dalnum hjá Tréfótshaug. Þangað kemst silungur, en ekki lengra. Þar var áður steinbogi yfir ána sjálfgjörður, sem nú er í miðju sundurbrotinn, samt geta fótfráir menn hlaupið þar yfir, þó hætta sé þar við mikil. […] Í kringum Tréfótshaug er hlaðinn grjótgarður, sem í sjálfu sér hefur verið stórkostlegur ɔ: haugur. […] Stað við Steingrímsfjörð, þann 15. júní 1840. Sig. Gíslason. (Ólafur Lárusson (editor), Sóknalýsingar Vestfjarða, bls. 245, bls. 252, bls. 253)

 

Framarlega í Kaldbaksdal er Tréfótshaugur, (sem nefndur er í Grettissögu). Þar er fornmannagarður í kring, en ekki er haugurinn líkur, að af mönnum sé gjörður, en garðurinn virðist benda til þess, að Önundur Tréfótur muni þar heygður. (Gísli Sigurðsson 1847, í: Ólafur Lárusson (editor), Sóknalýsingar Vestfjarða, bls. 257)

 

sbr. Ragnar Edvardsson, Fornleifaskráning í Kaldrananeshreppi, Strandasýslu. Lokaskýrsla, bls. 90–91 (ST-050:002 og ST-050:003)

Sögur

Æviforn munnmæli í Strandasýslu segja að haugur Önundar tréfóts landnámsmanns í Kaldbak sé fremst í Kaldbaksdal. Haugur þessi er jafnan í munnmælum nefndur Tréfótshaugur. Umhverfis hauginn hefir verið há girðing. Mikið mannvirki á þeirri tíð, er það var gert. Grafið mun hafa verið í Tréfótshaug, líklegast oftar en einu sinni. Hefir þá verið hlaupið frá því dreifðu, sem mokað hefði verið, og því ei mögulegt að segja um upphaflega lögun haugsins. Sagt er að Önundur tréfótur hafi verið þeim erfiður, er hann ásóttu. Hafi þeir orðið fyrir óhöppum og ýmsu ósjálfræði, svo fáa fýsti við hann að glettast. (Arngrímur Fr. Bjarnason, „Haugur Önundar tréfóts“, bls. 33)

 

Önundur tréfótur nam Kaldbaksvíkina, svo sem áður er að vikið, og bjó í Kaldbak til æviloka. Munnmæli segja, að hann sé heygður framarlega í dalnum ásamt fleiri ættlingjum sínum, enda segir Grettissaga, að Önundur liggi í Tréfótshaugi. Skriður kvað nú hafa fallið ofan í dalinn, þar sem haugarnir voru, og hulið þá að nokkru. Eitthvað kvað þó sjást þar fyrir fornlegum mannvirkjum. (Pétur Jónsson frá Stökkum, Strandamannabók, bls. 40)

 

Innst í dalnum eru tveir hólar, sem eru kallaðir Önundarhaugar; en á þeim er ekki mannaverk að sjá; það eru haugar af stórgrýti geysistór, sem jökull hefir ekið á undan sér. (Þorvaldur Thoroddsen, „Ferðasaga frá Vestfjörðum“, bls. 155; sbr. Þorvaldur Thoroddsen, „Dagbók úr ferð um Strandir sumarið 1886“, bls. 75)

 

sbr. Hjalti Jónsson 1817, í: Sveinbjörn Rafnsson, Frásögur um fornaldarleifar 1817-1823, bls. 441

 

álög á haugi Önundar tréfótar í Kaldbaksvík, sbr. Dagrún Ósk Jónsdóttir & Jón Jónsson, Álagablettir á Ströndum, bls. 65, bls. 144

 

Önundur tréfótur var grafinn þar með skipi sínu og öllu; einu sinni var ætlað að grafa í hauginn, en þá sýndist þeim bærinn á Kleifum standa í björtu báli og það varð ekkert úr þessum greftri, sbr. Guðmundur Ragnar Guðmundsson, 8. júlí 1970, Ísmús: SÁM 91/2358 EF

 

fornmannahaugur, Önundur tréfótur jarðaður í Kaldbaksdal, sbr. Sigurður Guðjónsson, 9. júlí 1970, Ísmús: SÁM 91/2360 EF

Leave a Reply