Kvíaból

þýski kofinn


named women kví
Örnefnaskrá

Innan við Giljatungur er Vallarbrekkur (66). Þar er landið hærra. Niður af Vallarbrekkum er Kvíaból (67). Þar niður undan við sjóinn heitir Krókur (68), þar sem ströndin beygir til suðurs. (Guðrún S. Magnúsdóttir, Kaldbakur (Strandasýsla, Kaldrananeshreppur), bls. 4–5)

 

Tekur þá við inn frá bænum, er veit fram í dalinn: Bæjarhlíð (36), Vallabrekkur (37) (Vallnabakkar (37 a) í stafrófsskrá), Nautahjalli (38), Kvíaból (39), Hjallagrindur (40) (Hjallagrundir (40 a) í stafrófsskrá), Krókur (41) (Matthías Helgason, Kaldbakur (Strandasýsla, Kaldrananeshreppur), bls. 2)

 

Túnið: […] 14 Kvíaból (Símon Jóh. Ágústsson, Kaldbakur (Strandasýsla, Kaldrananeshreppur), bls. 1)

 

sbr. Ragnar Edvardsson, Fornleifaskráning í Kaldrananeshreppi, Strandasýslu. Lokaskýrsla, bls. 95 (ST-051:008)

Sögur

Kvíaból, sem oft gengur undir nafninu „þýski kofinn“, var byggt árið 1936 af Halldóru og Walter Knauf. Fluttust þau til Ísafjarðar 1937 og notuðu húsið eftir það til sumarvistar. Margar sögusagnir hafa gengið um Walter. Meðal annars að hann hafi verið þýskur njósnari og hafi flúið til Kaldbaksvíkur í felur, en farið daglega upp á Miðaftanshögg til þess að athuga um siglingar breskra hermanna. Hann hafi verið gripinn að lokum og sendur til Bretlands og ekkert hafi heyrst af honum síðan. Hið rétta er að hann kom að lokum aftur til Íslands og er með öllu óvíst hvort hann hafi verið njósnari eður ei. (Anton Svanur Guðmundsson et al., Eyðibýli á Íslandi. Bindi IV: Rannsókn á eyðibýlum og yfirgefnum húsum í Austur-Barðastrandarsýsla, Vestur-Barðastrandarsýslu, Vestur-Ísafjarðarsýslu, Norður-Ísafjarðarsýslu og Strandasýslu sumarið 2013, bls. 108)

 

(sama saga án nákvæm staðsetning:) einn maður (Walter?) var handtekinn á Kaldbak, hann var hættulegur: hann var Þjóðverji; hann lenti í fangabúðum í Bretlandi, en kom aftur og bjó í Ísafirði; hann faldi sig frammi í Kaldbaksdal, sbr. Pálmi Sigurðsson

Leave a Reply