waterfall
Djúpavíkurá (32) er nokkru utar. Í henni er fallegur foss, Djúpavíkurfoss (33). Nafnið Eiðrofi (34) mun honum hafa verið gefið eftir 1934-5 af síldarfólki og búnar til um hann þjóðsögur, sem enginn kannast við af þeim, sem þarna hafa búið áður. (Guðrún S. Magnúsdóttir, Kjós (Strandasýsla, Árneshreppur), bls. 2)
Djúpuvíkurá (Guðrún S. Magnúsdóttir, Kjós. Athugasemdir (Strandasýsla, Árneshreppur))
Í víkinni var Stekkur (22) fyrrum, eftir henni rennur Djúpuvíkurá (23) og er í henni Djúpuvíkurfoss (24) þar sem hún rennur fram af hjallabrún er Gunnarshjalli (25) nefnist. (Jóhann Hjaltason, Kjós í Reykjarfirði. Örnefni og sagnir (Strandasýsla, Árneshreppur), bls. 3)
24. Djúpavíkurá (Símon Jóh. Ágústsson, Kjós (Strandasýsla, Árneshreppur), bls. 1)
Djúpuvíkurá fellur ofan klettana í tígulegum fossi, Djúpuvíkurfossi, og hríslast síðan niður eftir skriðunum ofan í hornið á víkinni. Á fyrstu síldarárunum (1934-35) spann síldarfólkið upp þjóðsögu um fossinn og nefndi hann Eiðrofa en það nafn hefur aldrei verið notað af heimamönnum. (Haukur Jóhannesson, Stundir á Ströndum. Frá Kolbeinsvík norður á Geirhólm, bls. 20)
gömul ljósmynd á sarpur.is
