Oddnýjargjá


trolls named women

Oddnýjargjá (41) er þröng gjá efst í gegnum klettabeltin, fær gangandi mönnum. Engar sagnir eru um nafnið. (Guðrún S. Magnúsdóttir, Kjós (Strandasýsla, Árneshreppur), bls. 3)

 

Upp af Djúpuvík er Oddnýjaargjáarholt (62) og Oddnýjargjá (63) þar má fara upp á heiðina ef vill. (Jóhann Hjaltason, Kjós í Reykjarfirði. Örnefni og sagnir (Strandasýsla, Árneshreppur), bls. 5)

 

30. Oddnýjargjá. 31. Oddnýjargjáarholt. (Símon Jóh. Ágústsson, Kjós (Strandasýsla, Árneshreppur), bls. )

 

Oddnýjargjá er skora allnokkru innar í Neðri-Brúnum. Tröllkerling með því nafni bjó í Háafelli og þegar hún renndi sér fram af klettabrúninni fór spilda fram þar sem nú er gjáin. (Haukur Jóhannesson, Stundir á Ströndum. Frá Kolbeinsvík norður á Geirhólm, bls. 20)

Skildu eftir athugasemd