Kattardalur


roadside place valley cats

Norðanvert í fjallinu er gróðurlítill bogadreginn dalur, sem nefnist Kattardalur (161). Einhverjar óljósar sagnir eiga að vera um villiketti þar, en Eiríkur telur þær fráleitar. […] Vetrarvegur er um Árdalina og Kattardal yfir Drangaháls til Drangavíkur. […] Sumarvegur, sem nefnist Kattardalsvegur (167), liggur hins vegar sniðhallt upp hlíðina upp í Kattardal. (Guðrún S. Magnúsdóttir, Drangar (Strandasýsla, Árneshreppur), bls. 9)

 

Drangaháls er allhátt fjall og er í hann að norðan yfir Árdölunum djúp lagð sem nefnist Kattardalur (115) upp úr honum er í hálsinum Árdalaskarð (116) og er þar farið á vetrum til Drangavíkur. (Jóhann Hjaltason, Drangar. Örnefni og sagnir (Strandasýsla, Árneshreppur), bls. 12)

 

Síðast er há brekka. Þegar komið er þarna upp, blasir Kattardalur í Drangalandi við. (Guðrún S. Magnúsdóttir, Drangavík. Athugasemdir og viðbætur (Strandasýsla, Árneshreppur), bls. 2)

Skildu eftir athugasemd